4-X


Monday, October 25, 2004
Jæja:)

Núna er semsagt tækifæri til þess að fá að mæta í hinn eina sanna

OFVIRKA MATARKLÚBB- þar sem við brettum upp ermarnar og töfrum fram mat!-alltaf:)

.....................................hummhummhumm:)

á ekki að mæta??



Tuesday, July 13, 2004
Endilega kjósa um dagsetningu hér!;)


Monday, July 12, 2004
Mér líst nokkuð vel á þetta, þ.e. ef að niðurstaðan verður að þessi dagsetning verði inni þá mælist ég til þess að við höldum bara reunion fyrir okkur.... löngu kominn tími á það svo sem. Þá er bara spurning um dagsetningu á það dæmi... Annska var búin að stinga upp á dagsetningu sem ég get allt eins stutt ... mæli bara með að fólk tjái sig hér ... ...En svo svona for the record, þá sé ég ekkert athugavert að fólk noti póstlistann til að tala saman, ég ætla mér ekkert að taka mér einhverja alsráðarstöðu. Ef ég er sá eini sem lætur fara í taugarnar á sér að fá fullt af bréfum sem eru 2-3 síður að lengd og einungis með 1-2 línum sem eru nýjar, þá verð ég bara gjöra svo vel að bíta í og éta það súra epli, þetta er allt í góðu.


Ég væri til í að breyta dagsetningunni, þetta er eini laugardagurinn í sumar sem ég kemst ekki. Það virðast vera margir sem komast ekki þennan dag.

Ég er að sjálfsögðu til í að hafa þetta góðan dag, verst að ég er hætt á subway og get því ekki reddað jafn góðum díl og seinast-hehe;)!!


Thursday, July 08, 2004
Heil og sæl öllsömul...
Ég veit svo sem ekki hverjir skoða þessa síðu eða hversu oft en ætla sem sagt að sjá hvort ég fæ einhver viðbrögð. Þið fenguð öll vonandi póst frá mér og eruð búin að skoða síðuna ... Spurningin fjallar sem sagt um hvort fólk vill breyta dagsetningunni sem og hvernig stemning er fyrir partýi á undan. Orðið á götunni (sem lýgur ALDREI) segir að það sé jafnvel stemning fyrir morgunpartýi ala árshátíð með Subway, pott og látum. Ég er eins og venjulega opinn fyrir öllu en mælist til þess að fólk noti þessa síðu til að ræða þessi mál og auðvitað svo ms-síðuna til að koma fram með mótmæli við tímasetninguna.. Hún var ekkert negld niður svo að það er efalaust hægt að hnika til ef fjöldinn nær "krítískum massa .... "


Tuesday, May 04, 2004
Allir að skrá sig hér


Saturday, April 24, 2004
Jæja. Þá er verið að skipuleggja re-union fyrir allan árganginn okkar, enda erum við 5 ára stúdentar í vor;)!!

Ég sendi email á þá sem ég var með adressuna hjá. Annars er fólk beðið um að senda email til Söru, sem var formaður 4. bekkjarráðs, og láta vita af sér. Emailið er : sara_axels@hotmail.com.


Monday, March 01, 2004
Jæja já, hér er víst allt nokkuð dautt svo að manni er óhætt að skrifa eitthvað... Svona, alltaf sami bölmóðurinn í manni, ekki annað hægt þegar maður er staddur í landi óvinarins. Neinei, Svíar eru ágætir eða eitthvað...... Það er allavega gaman að gera grín að þeim og bjánarnir halda að þeir kunni að drekka, phuh, þeir muna allir hvað þeir heita klukkan 4-5 og það er í minni bók ekki alvöru drykkja.... Ohhh Árni, þú ert svo mikil drykkjuhetjaaaaa. Allavega fyndið þegar þeir spyrja mann hvort drykkjuhefðin hérna hafi verið manni mikið sjokk, þ.e. þessi óbeislaða hefð að byrja að drekka klukkan kannski 6-7 og halda áfram alveg til 1-2 og kannski KANNSKI ef hlutirnir verða nógu villtir að fara í eftirpartý sem endist kannski alveg til 4-5, og drekka jafnvel svo mikið að maður verður alveg svíííín. Maaaagnað. Ég segi yfirleitt bara einfaldlega nei, það hafi verið furðulega auðvelt að aðlagast þessum barbarahætti...... Í raun ekkert skárra að byrja klukkan 9-10 og hætta klukkan 4-5. Eins kom mér á óvart sögukunnátta þessara snillinga en í litlum leikþætti sem fluttur var í veislu fyrir skiptinema kom fram að Leifur heppni Eiríksson hafi verið Svíi........? Maður getur svo sem rifist við Norðmenn um hann og ég ætla ekkert að segja um það mál, en ég hef aldrei séð menn gera tilkall til hans frá Svíþjóð áður, ekkert sem ég missti svefni yfir, enda á ég yfirleitt auðvelt með svefn, það er ekki það. Annars hef ég ekkert yfir neinu að kvarta hérna, þetta er sumpart eins og að vera í einhversskonar sápuóperu, fólk hefur sín hlutverk og gerir sitt besta í að koma þeim áleiðis, fúli strætóbílstjórinn, konan sem kvartar yfir því að maður sé ekki með ljós á hjólinu, afgreiðsludaman sem verður fúl yfir því að maður snýr ekki mjólkurfernunum þannig að strikamerkið snúi fram..... Fyndin kvikindi

Annars vildi ég bara segja að ef eitthvað fleira frá 4-X er til þá endilega koma því á framfæri, allavega að safna því saman þannig að næst þegar haldið verður partý verði hægt að draga þetta fram og sýna. Það er víst búið að vera í bígerð partý mjög lengi svo að það er aldrei að vita nema kannski að það verði eitthvað af því á endanum.... Þetta bréf er allavega snilld og ef til eru einhver ljóð...... ég allavega er til í að sjá þau.