4-X


Thursday, July 08, 2004
Heil og sæl öllsömul...
Ég veit svo sem ekki hverjir skoða þessa síðu eða hversu oft en ætla sem sagt að sjá hvort ég fæ einhver viðbrögð. Þið fenguð öll vonandi póst frá mér og eruð búin að skoða síðuna ... Spurningin fjallar sem sagt um hvort fólk vill breyta dagsetningunni sem og hvernig stemning er fyrir partýi á undan. Orðið á götunni (sem lýgur ALDREI) segir að það sé jafnvel stemning fyrir morgunpartýi ala árshátíð með Subway, pott og látum. Ég er eins og venjulega opinn fyrir öllu en mælist til þess að fólk noti þessa síðu til að ræða þessi mál og auðvitað svo ms-síðuna til að koma fram með mótmæli við tímasetninguna.. Hún var ekkert negld niður svo að það er efalaust hægt að hnika til ef fjöldinn nær "krítískum massa .... "