4-X


Monday, March 01, 2004
Jæja já, hér er víst allt nokkuð dautt svo að manni er óhætt að skrifa eitthvað... Svona, alltaf sami bölmóðurinn í manni, ekki annað hægt þegar maður er staddur í landi óvinarins. Neinei, Svíar eru ágætir eða eitthvað...... Það er allavega gaman að gera grín að þeim og bjánarnir halda að þeir kunni að drekka, phuh, þeir muna allir hvað þeir heita klukkan 4-5 og það er í minni bók ekki alvöru drykkja.... Ohhh Árni, þú ert svo mikil drykkjuhetjaaaaa. Allavega fyndið þegar þeir spyrja mann hvort drykkjuhefðin hérna hafi verið manni mikið sjokk, þ.e. þessi óbeislaða hefð að byrja að drekka klukkan kannski 6-7 og halda áfram alveg til 1-2 og kannski KANNSKI ef hlutirnir verða nógu villtir að fara í eftirpartý sem endist kannski alveg til 4-5, og drekka jafnvel svo mikið að maður verður alveg svíííín. Maaaagnað. Ég segi yfirleitt bara einfaldlega nei, það hafi verið furðulega auðvelt að aðlagast þessum barbarahætti...... Í raun ekkert skárra að byrja klukkan 9-10 og hætta klukkan 4-5. Eins kom mér á óvart sögukunnátta þessara snillinga en í litlum leikþætti sem fluttur var í veislu fyrir skiptinema kom fram að Leifur heppni Eiríksson hafi verið Svíi........? Maður getur svo sem rifist við Norðmenn um hann og ég ætla ekkert að segja um það mál, en ég hef aldrei séð menn gera tilkall til hans frá Svíþjóð áður, ekkert sem ég missti svefni yfir, enda á ég yfirleitt auðvelt með svefn, það er ekki það. Annars hef ég ekkert yfir neinu að kvarta hérna, þetta er sumpart eins og að vera í einhversskonar sápuóperu, fólk hefur sín hlutverk og gerir sitt besta í að koma þeim áleiðis, fúli strætóbílstjórinn, konan sem kvartar yfir því að maður sé ekki með ljós á hjólinu, afgreiðsludaman sem verður fúl yfir því að maður snýr ekki mjólkurfernunum þannig að strikamerkið snúi fram..... Fyndin kvikindi

Annars vildi ég bara segja að ef eitthvað fleira frá 4-X er til þá endilega koma því á framfæri, allavega að safna því saman þannig að næst þegar haldið verður partý verði hægt að draga þetta fram og sýna. Það er víst búið að vera í bígerð partý mjög lengi svo að það er aldrei að vita nema kannski að það verði eitthvað af því á endanum.... Þetta bréf er allavega snilld og ef til eru einhver ljóð...... ég allavega er til í að sjá þau.