Þetta er orðið efni i bestu sápu. Allavega, ég get bætt einu við: Halli er fluttur til Þýskalands eða var það kannski Austurríki...........allavega er að fara að vinna þar (hvar sem það er) í einhvern tíma.....og já, kærastan hans Ella er
ekki blind......
posted by herborg at 2:13 am
Áframhald og kannski eitthvað af leiðréttingum. Steinþór er kominn með sítt hár. Kjartan er farinn til Svíþjóðar. Dagmar er ekki orðin hjúkka en alveg að verða, hitti hana reglulega í Mætti. Leifur á ekki kærustu. Axel hitti ég um helgina og ég spurði hann hvað hann væri að gera en man ekki svarið. Kata komin með nýtt nýra og er í efnaverkfr. Dýrið er orðið trúlofað og er í lögfræði við HR. Ella, Harald, Gísla og Orra veit ég ekkert um. Og svo er Árni ekki í vetni, hann er að leggja parket.
posted by Gaui at 7:17 am
Hmm langt síðan maður hefur litið hingað inn. Hvað er annars að frétta af fólkinu. JónGeir farinn út til Berlín að læra vinnustaða sálfræði, Íversen í Írak, Ásta kominn með færeying uppá arminn, Ásdís er víst að reyna komast eins langt frá klakanum og hugsast getur, Leifur náði sér í útskriftarnema úr húsmæðra skólanum (a rare bread), Anna orðin stjarneðlisfræðingur en í Kanada, Árni að bisast í vetni, Gaui hættur að gera grín að verkfræðingum og farinn að stunda nám við VR, Hjalti kominn í matarklúbb með JónGeir, Herborg er EKKI í samfylkingunni, Þorri drakk í útskriftarferðinni, Pétur gegnur víst með tösku (skv. morgunblaðinu). Ég hitti Kjartan í fyrra vetur og þá var hann á leið til Svíþjóðar... er hann farinn? Hvað er Einar að gera... er hann orðin eðlisfræðingur? Hvert hvarf Axel? Er Helgi kominn til Hollívúd? Er Dagmar orðinn hjúkka eða er hún kannksi farinn að fjölga sér? Endilega leiðréttið þessar staðreyndarvillur fyrir mig og látið mig vita hvað er að frétta af fólkinu.
posted by arndis at 8:58 am
Legg nú til að allri kalhæðni og meinhæðni og annari hæðni verði hætt og léttara hjal tekið up. Jón Geir er farinn af landi brott og óskum við honum að sjálfsögðu velfarnaðar í framtíðinni. Eins óskum við þess að orð Jóns Tómasar um námsmenn í Þýskalandi rætist ekki en hann segir að þeir sem fari til Þýskalands komi til baka sem annað hvort perrar eða fyllibyttur. Það væri synd ef Nonninn okkar færi nú að drekka.
Af mér er allt fínt að frétta og kýs ég að fara ekkert nánar út í þá sálma, fínt er bara svona fyrir ofan meðallag og ekki þarf að orðlengja það.
Af öðrum en mér ....... Jah, það verður að sjálfsögðu að koma frá þeim sjálfum. Ef ekkert kemur frá þessu liði samt fljótlega mun ég skrifa stutta lýsingu á högum þess sjálfur og þá verður ekkert dregið undan.
Bið að heilsa ykkur og megi Gne Shatwl vera með ykkur
posted by Árni Sigurður at 12:54 am