jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeey
posted by Árni Sigurður at 8:51 am
Ég, Ásdís og Ásta ætlum að hittast hjá Ástu um helgina, í Odense. Verður eflaust voða gaman hjá okkur:)
posted by herborg at 5:03 am
Hvaða endemis aumingjaskapur er þetta, ætlið þið að reyna að segja mér að af öllum þessum fjölda fólks sem er búinn að logga sig hingað inn hafi enginn neitt að segja??? Hvernig væri nú að fólk tæki sér smá stund í að skrifa nokkrar línur um það sem það er að aðhafast þessa dagana. Það vita allir hvað ég er að gera svo ég skal hlífa ykkur en ég hef á tilfinningunni að einhverjar af þeim fjöldamörgu sögum sem maður hefur heyrt af samnemendum sínum úr menntaskóla séu hreinlega ekki sannar og eru þeir aðilar gjarnan beðnir um að leiðrétta. Er til dæmis rétt að Þorri hafi í sumar flutt til Bandaríkjanna og gert tilraun til að starta tónlistarferli í dauðarokksveitinni Chicken is GOD (eða Good, man ekki alveg) en það hafi ekki gengið upp sökum ágreinings milli hans og aðal harmonikkuleika sveitarinnar um listræna stjórnun? Er það rétt að Einar Magnús sé á leiðinni að starta hippanektarnýlendu í Surtsey, sem verður prófunarstaður fyrir væntanlega þáttakendur í Survivor 6 eða 7 eða eitthvað, sem tekin verður upp hér á landi, jafnvel í Surtsey? Þá munu hipparnir hans Einars þurfa að leika snarbilaðar mannætur sem hafa verið þarna frá örófi alda og koma í stað allra hættulegu dýranna sem hafa verið svo áberandi í fyrri þáttaröðum.... En ógnvægilegasta sagan sem heyrst hefur hlýtur að vera að nokkrir af meðlimum bekkjarins séu að koma upp alþjóðlegu njósnaneti með útsendara í ýmsum heimsálfum með það að markmiði að hafa áhrif á Miss World keppnir framtíðarinnar og að fyrsta skrefið í þessari djöfullegu ráðagerð sé að yfirtaka VR-II sem miðstöð. Undirritaður hefur orðið þess áskynja frá því að hann hóf nám í Háskólanum að fleiri og fleiri fyrrverandi samnemendur hans hafa hafið nám í VR-II og nú er svo komið að þeir hafa háttsetta aðila í öllum helstu nemendafélögum sem hýst eru þar inni og eru í raun orðin meginstoðir í heilu árgöngunum. Um mína aðild í öllu þessu skal látið ósagt en ég mun spenntur fylgjast með Miss World keppnum framtíðarinnar til að sannreyna að eitthvað misjafnt sé á seyði…….en ekki hvað?
posted by Árni Sigurður at 6:01 am
Ég ætla nú ekki að skrifa mikið núna, bara að óska félaga vor vin og verkamann, Ælir drullu, velkominn hingað og vona að hann fari nú að láta í sér heyra.....
posted by Árni Sigurður at 12:56 am
Jim and Mary were both patients in a Mental Hospital. One day while they were walking past the hospital swimming pool, Jim suddenly jumped into the deep end. He sunk to the bottom & stayed there. Mary promptly jumped in to save him. She swam to the bottom and pulled Jim out. When the medical director became aware of Mary's heroic act he immediately ordered her to be discharged from the hospital, as he now considered her to be mentally stable. When he went to tell Mary the news he said, "Mary, have good news & bad news. The good news is you're being discharged because since you were able to jump in and save the life of another patient, I think you've regained your senses. The bad news is, Jim, the patient you saved, hung himself with his bathrobe belt in the bathroom. I am so sorry, but he's dead."
Mary replied "He didn't hang himself, I put him there to dry."
posted by herborg at 8:07 am