4-X


Sunday, September 22, 2002
Jim and Mary were both patients in a Mental Hospital. One day while they were walking past the hospital swimming pool, Jim suddenly jumped into the deep end. He sunk to the bottom & stayed there. Mary promptly jumped in to save him. She swam to the bottom and pulled Jim out. When the medical director became aware of Mary's heroic act he immediately ordered her to be discharged from the hospital, as he now considered her to be mentally stable. When he went to tell Mary the news he said, "Mary, have good news & bad news. The good news is you're being discharged because since you were able to jump in and save the life of another patient, I think you've regained your senses. The bad news is, Jim, the patient you saved, hung himself with his bathrobe belt in the bathroom. I am so sorry, but he's dead."
Mary replied "He didn't hang himself, I put him there to dry."




Saturday, September 21, 2002
Jæja þá er maður mættur í skólann, ferskur sem fiskur á laugardagsmorgni. Þetta er lífið.... aaaaaaaaaaah. Reyndar er gleði enn í mínu hjarta eftir einhverja skemmtilegustu tónleika sem ég hef farið á, sem voru í gærkveldi. Þetta var sem sagt tríó Jacques Loussier sem spilaði hérna í Háskólabíó og voru alveg magnaðir. Ég veit að Einar veit hver þessi maður er og fyrir þá sem vita ekki er þetta jasspíanisti sem tekur klassísk lög og djassar þau upp, frægastur fyrir að spila Bach en er farinn að spila eftir mun fleiri og m.a. sjálfan sig. Þetta var sem sagt frábært og ég mæli með því að fólk kynni sér þennan mann.
Annars er lítið í fréttum og ætla ég því ekki að hafa þetta lengra í bili. Nema jú, ég er viss um að þegar Þórður frétti af blaðinu hans Ágústar þá fékk hann að skipta og Ágúst fékk ársáskrift af hinu blaðinu, þetta fannst þeim báðum góð skipti, þar til Þórður áttaði sig á því að þetta var ekki blaðið sem Herborg vildi kaupa.........



Friday, September 20, 2002
Jæja hvar eru Axel, Leifur, Ásta, Dagmar, Íversen, Hjalti og aðrir snillingar? Er ekki spurningum um að hafa sambandi við þá, eðlisfræðingarnir virðast vera að taka öll völd á þessum vef! Sigurður Donys, var hann ekki kennari í MS, kenndi þýsku?


Thursday, September 19, 2002
Óþarfi að taka þessu svona illa Orri minn. Mér líst vel á að allir komi með sína kenningu um hvað Ágúst haf i gert við blaðið fræga. Mín kenning er sú að það sé inn í koddaverinu hans og að hann skoði blaðið þegar konan hans er sofnuð.....hehehe. Varðandi áskriftina hans Þórðar þá er hún löngu runnin út, efast um að hann hafi framlengt áskriftina, þetta var alveg vonlaust blað. Ekki jafn mikill metnaður fyrir valinu á Þórðar blaði og blaðinu hans Ágústs!!


Þorsteinn er með þetta núna og hann er að standa sig bara ágætlega. Hann er allavega betri heldur en Þorvaldur sem eins og þú veist kenndi þannig að enginn mætti í fyrirlestra. Þorsteinn reynir allavega að skrifa á töfluna þannig að það er samhengi í því sem er að gerast.


Hey!! Fólk verður bara að finna þá betri umræðuefni, byrja nýja þræði, vera frumlegt. Þetta er til dæmis tilvalinn vettvangur til að ræða byggðastefnu stjórnvalda, fiskstjórnunarkerfið, ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar, Karahnjúka. Nú eða bara hvort Tom Cruise sé hommi. Einnig er hægt að varpa fram tilefnislausu slúðri og kanna viðbrögð við því. Það má jafnvel tala um fótbolta en ég hugsa að það verði það síðasta sem rætt verður um hér. Nú svo má alltaf velta fyrir sér hvar Þórður sé þessa stundina og hvort hann hafi nokkruntíma fengið blöðin sem við gáfum honum og einnig ræða um hvar blaðið sem við gáfum Ágústi sé niðurkomið núna, hvort það hafi endað í ruslatunnu, skúffu eða bara undir rúm..........
Eitt er víst og það er að ekki verður frekar rætt um nykurrúm hér, allavega ekki af minni hálfu, því það virðist hafa farið frekar illa í fólk.



ykkur finnst skrýtið að enginn nenni að blanda sér inn í umræðuna.......


Wednesday, September 18, 2002
Stefnan er eins og er mastersmám hérna undir Hannesi og Sveini, verð að vinna eftir áramót niðri í kompu og svo býst ég við að fara út næsta haust. Veit ekki enn hvert, það verður bara að koma í ljós í fyllingu tímans. Ég er í einum verkfræðikúrs, svo er restin bara ellifræði, ellifræði 3 (ákvað að sitja það aftur.....) ellifræði þéttefnis, og safnellifræði. Mjög spennandi og skemmtilegt......? Svo erum við bara að tala um vetni og allt sem tengist því.
Annars sit ég núna í VR-III í góðum fíling, hlustandi á m.a. Oasis og lepjandi á dýrindis súkkulaði og möndlubættu kaffi, að reyna að forrita finite element forrit fyrir stangarvirki með 5 elementum og 6 frelsisgráðum. Líf mitt getur varla orðið meira spennandi. Ég er allavega ekki viss um að ég mundi höndla meiri spennu og fleiri atburði, það færi alveg með mig.....
Kveð í bili Árninn


Hvað er að gerast, fengu allir ritstíflu í framhaldi af þessum leiftrandi umræðum okkar Orra.


Tuesday, September 17, 2002
Þetta helst í hendur við hitann.....


jújú, höfuðið á naglanum steinlá fyrir þessu höggi hjá þér Orri


Nei þetta stendur á mjólkurfernum hérna heima.......


hverja vantar á listann, getur ekki verið erfitt að redda því



æææææ.......greyið kindurnar


Þetta er allt í góðu Orri minn, ég var ekki klár á emailinu þínu svo að þú fékkst ekki póst fyrr en um 11 í gær (mytime) sem þýðir það annars að þú varst næst fljótastur að koma hingað, eftir Önnsku.
Ég veit ekkert hvað þetta fólk er að rífa sig vegna hita, ég ætla ekki að fullyrða en þó tel ég mjög líklegt að hvergi nema á Íslandi hafi hitinn verið svo mikill undanfarna vikur að sauðfé sé farið að drepast, já ég lýg engu, rollur eru að drepast úr hita hérna á hálendinu sem verður líklega að teljast nokkuð óvenjulegt á þessum árstíma.
Ég man ekki eftir neinu fréttnæmu öðru sem hægt er að birta hér en segi þó - að séu einhverjar fréttir af einhverjum sem vill að þær fréttist út væri réttast að sá aðili rétti þær hér út...........
Látið vita ef ykkur finnst vanta nöfn á listann, ég veit að hann er ekki tæmandi en er bara ekki með email hjá fleirum þessa stundina.
kveðja, Árni

ps: svo manstu bara Orri að reciprocal lattice er nykurrúm!!