4-X


Wednesday, January 14, 2004
Fann þetta, bréfið okkar til Þórðar sem aldrei birtist í Tirnunni:

Elsku Þórður.

Við gerðum okkur grein fyrir því strax og við litum þig augum að þú áttir eftir að vera mikill áhrifavaldur í lífi okkar, maðurinn sem kenndi okkur aðalgreinina okkar. Þú varst maðurinn sem gast veitt okkur innblásturinn, maðurinn sem vakti í brjósti okkar óslökkvandi þorsta og þrá eftir meiri þekkingu á lögmálum eðlisfræðinnar.
Þú varst alltaf tilbúinn til að benda okkur á það sem betur mátti fara, t.d. settirðu alltaf einkunnirnar okkar fram á myndrænan hátt með geysifallegum og greinagóðum stöplaritum. Við hins vegar hljótum að hafa misskilið eitthvað því við vorum alltaf að reyna að fá sem fallegustu myndina. Við lögðum til dæmis mikið á okkur við að búa til brosandi stöplarit, sem voru í uppáhaldi hjá okkur, og voru það iðulega bestu (video)myndlistarmennirnir sem tóku að sér að vera lengst til vinstri á stöplaritinu.
4X ´99 er án efa fjörugasti eðlisfræðibekkur sem hefur verið innan veggja MS og hefur það reynt mikið á þig sem kennara að kenna okkur. Það var aldrei hljóð í bekknum og mætti frekar nota orðatiltækið að það hefði mátt heyra saumavél detta (kannski) en að það hefði mátt heyra saumnál detta. Við vonum að þú hafir ekki hlotið neinn skaða af!
Við ætlum ekkert að hafa þetta mikið lengra, en semsagt takk fyrir veturinn og megi framtíðin vera þér björt.

4X, veturinn 1998-1999.