4-X


Saturday, September 13, 2003
Ég get alltaf treyst á þig, Guðjón minn:)!!!! Sammála, það nálgast að vera glæpur að segja að maður sé Samfylkingarmanneskja.......en allavega, eigum við ekki að tala um eitthvað annað......


Ég verð nú bara að segja að þetta var frekar ósmekklegur brandari hjá þér Árni minn. Það er eitt að segja að það séu ofdrykkjumenn í Sjálfstæðisflokknum, sem er ef til vill rétt, en að fara að bendla fólk við Samfylkinguna er bara of mikið og stend ég heilshugar með Boggu minni í þessu máli.


Friday, September 12, 2003
Þér er fyrirgefið í þetta sinn, ROTTAN ÞÍN!!!!


Thursday, September 11, 2003
Sorry Herborg, þetta átti bara að vera fyndið þar sem við erum bara tvö að skoða þetta. Bjóst reyndar við því að flestir myndu fatta að grín væri á ferð. Skal ekki misnota vald mitt aftur.....


hvernig getur einhver breytt póstinum mínum!!!!!!! er ekki í lagi með fólk, segi ég nú bara. ég hef nú bara ekki vitað annað eins!!!!


Wednesday, September 10, 2003
Bara benda á það ef valdi mínu hér á þessari síðu er misboðið ................... verður gripið til aðgerða


Ætlaði bara að monta mig smá: Ég er að fara á Stuðmenn í Tívolí á laugardaginn!!
Bíddu, Árni var ég kannski búin að segja þér það???............þ.a.l. óþarfi að setja það á netið kannski......:)



Monday, September 08, 2003
Maaagnað, er að færast líf í kvikindið???
Ég sem sagt styð tillögu Herborgar um partý um jólin, gallinn er bara að ég og Herborg eru þau einu sem koma hingað svo að ...... ja, þú skilur hvað ég á við.
Annars allt fínt af mér að frétta, mælingar nánast hafnar, kúrsar valdir og byrjaðir, og boltinn farinn að rúlla, er er alltaf gott og svo auðvitað hápunktur síðustu vikna hjá mér...... Kazaa komst í gang eftir að hafa verið óvirk frá áramótum........