Augljóst að maður þarf að gera vísindalega tilraun á föstudagskvöldið og skrifa hérna inn eftir að hafa drukkið ótæpilega af þessum undradrykk sem jú bjórinn er. Annars er það alveg rétt hjá þér Einar, allar framfarir eru bjórnum að þakka, menn eru aldrei eins frjóir og hugmyndaríkir og einmitt eftir að þeir hafa drukkið mikið af bjór. Þeir eiga bara svo erfitt með að koma öllu frá sér að það gleymist alltaf mest af því. Eina ástæðan fyrir því að ég kom ekki auga á þessa augljósu staðreynd var sú að ég hef ekki drukkið bjór í allt of langan tíma. Það verður gerð bragarbót á því fljótlega......
posted by Árni Sigurður at 2:14 am