Jahá, svo þið eruð svona hress. Svona álíka hress og skelfiskur á Spáni...... Nei ég segi svona, ég er alveg hættur að líta svo á að það eigi fleiri að skrifa hér inn en ég, er hreinlega farinn að líta svo á að þetta sé minn persónulegi bloggvefur sem aðrir eiga ekkert erindi með að vera að skrifa inn á. (Barnasálfræði rúlar). Nema hvað, var í Kringlunni um helgina, ásamt einum úr þessum hóp, sem í raun væri ekki til frásögu nema hvað í Kringlunni voru einnig nemendur einhvers skóla hér á höfðborgarsvæðinu að dimmitera. Þetta væri ekki heldur til frásögu færandi nema fyrir það að dýrin voru í Teletubbies búningum. Ég var ekki nógu sáttur við þetta, hélt að við hefðum einkarétt á þessum búningum. Reyndar var þessi búningur mjög lýsandi fyrir það hversu langt við vorum á undan okkar samtíð. Ég man ekki betur en það hafi enginn vitað hvað þetta var nema einhverjir útlendingar á Lækjartorg, sem hafa ábyggilega í framhaldinu haldið að allur hamagangurinn þarna hafi verið einhversskonar gay-pride okkar íslendinga....eða ekki....
posted by Árni Sigurður at 12:31 am
Ég hlakka geðveikt til þegar fleiri en ég fara að tala hér í fleiri en einni setningu í einu.....
posted by Árni Sigurður at 8:11 am