4-X |
Thursday, November 07, 2002
Jájá Árni minn, ég skal taka það til athugunar að gefa mér tíma til þess að skrifa hérna við og við......:) Wednesday, November 06, 2002
Já þið segið það, ég er ekkert veikur, allavega ekkert veikari en ég á að vera. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað hingað inn lengi er einfaldlega sú að ég hélt að það væru allir hættir að lesa hérna, en fyrst að svo er ekki er um að gera að grípa pennann og láta gamminn geisa...... eða þannig. Ótrúlegt en satt þá er eitthvað af mér að frétta, allavega finnst mér það fréttnæmt að eftir að hafa verið með bílpróf í ein 6,5 ár þá sé ég loksins kominn með bíl til umráða. Ég gerist ekki svo djarfur að kalla það að ég eigi bílinn því að ég á ósköp lítið í honum en hann er allavega skráður á mig og ég má alveg nota hann.
Mér finnst nú, svo að ég tjái mig aðeins um eitthvað af því sem hér hefur verið ritað, alveg arfaléleg afsökun að menn hafi ekki verið að skrifa hérna inn því að þeir/þær/þau/það séu of upptekin við að skrifa á netið einhverstaðar annarsstaðar. Þetta á við um marga og lýsi ég hér með yfir frati á þá sem telja sínum tíma á netinu ( sem ég þykist vita að er umtalsverður) betur varið annarsstaðar en akkúrat hérna. Þeir hinir sömu verða bara að koma hingað og svara ef þeir hafa eitthvað við þetta frat að athuga...... Hvað segir þú Einar, ertu búinn að panta miða, ertu búinn að senda honum bréf og segja honum að þú ætlir að henda einhverju óskemmtilegu upp á sviðið í anda Tom Jones, eða ekki. Ég held að þú og Bjarni Már ættuð að tala saman, ég held að hann hafi líka fallið saman við fréttirnar. Svo að við snúum okkur að einhverju öðru, eru fleiri sem eru sammála mér í því að mínu nafni virðirst fylgja einhver ógæfa í Kastljósinu. Ég ætla aldrei í Kastljósið, ég mundi ábyggilega enda með því að segjast vera talibani með sterk ítök í Al-Qaida samtökum mínum en ég sé betur þekktur sem eitthvað annað en Árni. Nöfnum mínum virðirst allavega ekkert ganga neitt sérstaklega vel þarna. Sjávarútvegsráðherrann okkar var sá síðasti, hann skaut af sér löppina með fallbyssu, geri aðrir betur. Á fárra færi nema Mr. Johnsen en nóg um það. Læt þetta duga í bili, hlakka til að skrifa annað kvöld, þá verður hæstvirtur iðnaðarráðherra búin að koma í heimsókn niður í kompu svo að hægt sé að segja að hún sé í "góðum tengslum við grunnrannsóknir í Háskólanum". Monday, November 04, 2002
ástæðan fyrir því að ég er ekkert rosalega mikið að tjá mig á þessu bloggi er sú að ég er með mína eigin bloggsíðu.....og ef einhver hefur áhuga á að vita hvernig lífið hjá mér er þessa dagana þá endilega smelliði |