Utahhhhhhhh? Annars er það rétt hjá þér, það er alveg furðulegt hvað fólk heldur. Ég hef til dæmis lent í því að útskýra fyrir fólki að þegar æðardúnn er tekinn þá sé kollan ekki tekin og hreinlega reitt og svo hent á eftir heldur sé verið að nota fiður sem hún reitir af sér sjálf, fólk á rosalega erfitt með að sætta sig við þetta þegar það er annars búið að blása sig upp í einhver mótmæli og ætla sér að segja margt um illsku mannanna.
posted by Árni Sigurður at 3:38 am
Varð bara að pósta þetta, kemur af mbl.is
Átu dýrin í dýragarðinum
Tveir starfsmenn dýragarðs í Þýskalandi hafa verið reknir fyrir að éta dýrin í garðinum.
Talsmaður lögreglunnar í Recklinghausen norður af Köln sagði að gæslumenn í barnahorni garðsins hefðu slátrað og grillað fimm tíbetskar fjallageitur og tvær ær frá Kamerún.
Dýrin voru í gæludýrahorni garðsins þar sem börn gátu strokið og klappað þeim.
posted by Árni Sigurður at 7:17 am
Það hefur borist mér til eyrna að menn hafi lent í einhverjum vandræðum við að komast hérna inn. Ég bendi þeim sem í því hafa lent að einfaldlega senda póst á mig asi@hi.is til að fá boð inn á síðuna aftur.
posted by Árni Sigurður at 1:44 am